Um Blóma
Blóma er vefverslun fyrir þau sem vilja rækta fallega á einfaldan hátt, án þess að þurfa að vera með sérstaklega græna fingur.
Hugmyndin að Blóma kviknaði af áhuga á blómum, ræktun og görðum og gleðinni sem fylgir því að sjá blómin koma upp á vorin. Markmiðið er að velja saman hágæða blómlauka og fræ sem henta íslenskum aðstæðum og vandaðar og fallegar vörur. Vörunum fylgja einfaldar og skýrar leiðbeiningar lagaðar að íslenskum aðstæðum.
Úrval Blóma fylgir árstíðunum. Í boði verða meðal annars sérvaldir blómlaukar, fræ, ræktunarsett og fylgihlutir sem auðvelda fólki að koma sér af stað. Ræktunarsettunum er ætlað að sameina það helsta sem þarf í eitt fallegt og aðgengilegt sett, hvort sem það er ætlað fyrir eigið heimili eða sem gjöf.
Blóma er ekki aðeins fyrir reynslumikið garðyrkjufólk. Vörurnar og leiðbeiningarnar eru einnig hugsaðar fyrir þau sem langar að rækta en eru óviss um hvar þau eigi að byrja. Það á að vera auðvelt að velja, planta og njóta þess að sjá árangurinn vaxa.
Vonandi færir Blóma gróður, gleði og litadýrð inn í hversdaginn.
Einföld falleg ræktun.
Blóma er vörumerki og vefverslun rekin af Í blóma ehf.
Í blóma ehf. kt. 410626-1790,
VSK númer 162076.