Þjónustuskilmálar

1. Almennt

Þessir skilmálar gilda um sölu á vörum í vefverslun Blóma, Í Blóma ehf. á www.bloma.is. Með því að leggja inn pöntun samþykkir kaupandi þessa skilmála.

Seljandi: Í Blóma ehf.

Kennitala: 420626-1790

Heimilisfang: Selvogsgrunn 8

Netfang: info@bloma.is

 

2. Verð og greiðslur

Öll verð í vefverslun eru birt í íslenskum krónum (ISK) og eru með virðisaukaskatti nema annað sé tekið fram.

Greiðsla fer fram með þeim greiðslumátum sem boðið er upp á í vefversluninni hverju sinni. Pöntun telst samþykkt þegar greiðsla hefur verið staðfest.

Blóma ehf. áskilur sér rétt til að breyta verðum án fyrirvara. Verðbreytingar hafa þó ekki áhrif á þegar staðfestar pantanir.

3. Pöntunarstaðfesting

Eftir að pöntun hefur verið lögð inn fær kaupandi senda staðfestingu með tölvupósti. Ef staðfesting berst ekki er kaupanda bent á að hafa samband með tölvupósti á info@bloma.is.

Í Blóma ehf. áskilur sér rétt til að hafna eða fella niður pöntun vegna rangra verð- eða vöruupplýsinga, tæknilegra mistaka eða ef vara er ekki til á lager.

4. Afhending

Vörur eru afhentar samkvæmt þeim afhendingarmöguleikum sem í boði eru við kaup.

Afhendingartími getur verið breytilegur eftir vörutegund, árstíma og álagi.

Kaupandi ber ábyrgð á því að uppgefa réttar afhendingarupplýsingar.

Ef afhending tefst vegna aðstæðna sem Blóma ehf. hefur ekki stjórn á, svo sem veðurs, samgöngutruflana eða annarra óviðráðanlegra atvika, ber félagið ekki ábyrgð á tjóni sem kann að hljótast af.

 

5. Fræ, blómlaukar og lifandi ræktunarefni

Fræ, blómlaukar og annað lifandi ræktunarefni eru náttúruvörur og geta niðurstöður ræktunar verið mismunandi eftir ræktunarskilyrðum, veðurfari, geymslu og meðferð.

Í Blóma ehf. ábyrgist að vörur séu afhentar í söluhæfu ástandi en getur ekki ábyrgst ákveðna spírunarprósentu, vöxt, blómgun eða uppskeru þegar varan hefur verið afhent.

Kaupanda ber að fylgja leiðbeiningum um geymslu og ræktun.

6. Skilaréttur og endurgreiðslur

Kaupandi hefur almennt 14 daga frest til að falla frá kaupum í samræmi við lög um neytendasamninga, að því gefnu að varan sé ónotuð og í upprunalegum umbúðum.

Undanþegnar skilafresti eru vörur sem:

  • geta skemmst eða rýrnað hratt,
  • eru sérpantaðar fyrir viðskiptavin,
  • hafa verið opnaðar eða notaðar þannig að ekki er hægt að selja þær áfram sem nýjar.

Við samþykkt skil eru kaup endurgreidd með sama greiðslumáta og notaður var við kaupin, nema annað sé sérstaklega samið um.

7. Gallaðar eða rangar vörur

Ef vara reynist gölluð eða röng skal kaupandi hafa samband við Í Blóma ehf. eins fljótt og unnt er og eigi síðar en innan sanngjarns frests frá því að galli kemur í ljós.

Kaupandi er beðinn um að senda lýsingu á vandamálinu ásamt myndum ef við á.

8. Persónuvernd

Blóma ehf. meðhöndlar persónuupplýsingar í samræmi við gildandi persónuverndarlög.

Persónuupplýsingar eru eingöngu notaðar til að afgreiða pantanir, veita þjónustu og sinna lögbundnum skyldum.

9. Takmörkun ábyrgðar

Blóma ehf. ber ekki ábyrgð á óbeinu tjóni, afleiddu tjóni eða tekjutapi sem kann að verða vegna notkunar vara eða tafa á afhendingu.

Ábyrgð félagsins takmarkast að hámarki við verðmæti viðkomandi vöru.

10. Lög og varnarþing

Um skilmála þessa gilda íslensk lög.

Rísi ágreiningur vegna viðskipta skulu aðilar leitast við að leysa hann með samkomulagi. Takist það ekki getur máli verið vísað til íslenskra dómstóla.